Hugsjónir Jóns Sigurðssonar

Mikið er ég sammála forsetanum okkar. Ég held að íslenskir stjórnmálamenn og menn í íslenskri stjórnsýslu ættu að hafa hugsjónir Jóns Sigurðssonar að leiðarljósi, þó ekki væri nema bara að unna landinu sínu  og vera heiðarlegir og heilir í hugsun. Jón Sigurðsson var hugsjónar maður sem tókst að leiða þjóðina til sjálfstæðis vegna þess að hann unni þjóð sinni svo mikið. Hann elskaði landið sitt. Ég velti því fyrir mér hvar Jón stæði í pólitík og hvaða flokki hann tilheyrði ef hann væri meðal okkar í dag. Ég leyfi mér að efast um að sá flokkur sé til.
mbl.is Hugsjónir Jóns að leiðarljósi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Pólska sláturhús myndin á RÚV í kvöld, föstudagskvöldið 15 apríl

Drottinn minn dýri! Ég hef sjaldan orðið eins þunglyndur yfir neinni mynd eins og þeirri sem RÚV sýndi í kvöld. Þetta var Pólsk mynd sem ég kom inn í þegar hún var um það bil hálfnuð. Og guð minn góður, ég hef aldrei séð annað eins ógeð. Menn aflífaðir með hamri af dópistum sem síðan voru hengdir upp naktir eins og svínaskrokkar og gert að þeim eins og slátruðum skepnum. Og það var ekkert dregið undan og allt sýnt. Blóðið og iðrin láku niður í kör sem síðan voru tekin og innihaldið meðhöndlað líkt og gert er þegar slátur er búið til. Var þessi mynd sýnd til að þóknast Pólverjum búsettum á íslandi?Eða bara til að auka á fjölbreytni í dagskrá. Ég er handviss um að Pólverjum hér hefur liðið nákvæmlega eins og mér leið, og eflaust flestum sem horfðu á myndina. Ég fór inn á dagskránna á heimasíðu RÚV til að sjá hvað myndin heitir en þeim hefur þótt hún ekki þess verðug að minnast á hana í dgaskránni. Menningarmiðill allra landsmanna sem hver kennitala í landinu þarf að greiða rúmar 17 þúsund krónur til er kominn á býsna lágt plan með sýningu á svona myndefni. Ég velti því fyrir mér hvort RÚV sé farið að snúa efniskaupum sínum í Kolaportið á laugardögum. Alla vega gefur dagskrárefni þessa dýrasta miðils lansdsins það til kynna með nánast öllu sem RÚV sýnir.


Snnniiiiiilllllliiiiiiiinnnnnggggggaaaaaaaaaaaaaarrrrrrrrrrrrr

Fyrst verður hrun á olíumörkuðum uppá tæp níu prósent eins og gerðist í upphafi síðasta mánaðar.....Hvað gerist þá á Íslandinu grámyglaða? Auðvitað hækkar eldsneytisverð.

Gengi bandaríkja dollars lækkar um 4.7% á þessum sama tíma og hvað gerist þá á sama skeri? Auðvitað hækkar eldsneytisverð.

Nú hefur dísilolía náð að para bensínverð í fyrsta skipti síðan 2006. Hversvegna? Nákvæmlega vegna þess að olíufélögin tóku pólitíska ákvörðun um það í sameiningu fyrr á þessu ári að ná inn hagnaðaraukningu af olíunni. Eins og ég segi.....Þetta eru bara snillingar!

 


mbl.is Bensínverð hækkar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Easy poop

Það er engin spurning að þarna á Spaugstofan allan heiðurinn af auknu áhorfi á ÍNN, þar sem Örn Árnason túlkar Hrafninn á snilldarhátt Smile
mbl.is Áhorf á ÍNN eykst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Grrrrrrrrrrrrrrrrr.....

Er gamla góða Spánska Flugan komin í dósir Wink ....Grrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrr........
mbl.is Umbúðirnar þóttu of djarfar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Samfélagsþjónusta til fullnustu sekta.

Það hefði átt að vera búið að hefja framkvæmdir á nýju fangelsi fyrir löngu síðan, og láta þá sem ekki geta greitt sektir sínar að taka út samfélagsþjónustu við uppbyggingu á fangelsinu. Þannig myndi ríkið spara gríðarlega fjármuni á mörgum sviðum við bygginguna, og fá til sín þá fjármuni sem ella hefðu ekki skilað sér. Af fréttum af skattalagabrotum í gegnum tíðina hefur oft komið fram að verktakafyrirtæki, fyrirtæki í byggingaiðnaði og iðnaðarmenn úr flestum geirum hafi komið þar við sögu.
mbl.is Geta greitt sekt en borga ekki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Já sææælll!!!

Er þetta ekki fyrsta skipti í marga mánuði sem þingheimur allur, úr öllum flokkum eru sammála um eitthvað. Þarna tókst öllum stýrlátum og óstýrlátum að snúa saman bökum og keyra í gegn landsins þarfasta málefnið, nefnilega að banna nektardans. Hvað með öll "hin málin" sem öll þjóðin er að sligast undan. Kannske eru pólitíkusarnir orðnir svona sligaðir sjálfir af öllu rifrildinu og skotgraraæfingunum út af þeim málum að þeim hefur fundist tilbreyting í því að tækla jafn mikilvægt málefni eins og að banna strippdans. Kannske ráða þeir bara ekki við stærri mál.
Fariði nú að taka jafn samhent og einhuga á öðrum mikilvægari málefnum.

mbl.is Alþingi bannar nektardans
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hundruð milljarða skattsvik

Það er sennilega alltof seint í rassinn gripið þarna líka, eins og með blessuðu skjaldborgina. Það hefur einhvernveginn allt mistekist hjá ykkur blessuðu skötuhjú, Jóhanna og Steingrímur. Vitlaus forgangsröðun á hlutunum og öll athygli ykkar hefur bara beinst að málefnum sem virðast ekki einu sinni ætla að ganga upp, og óratími og vinna búin að fara í. Þetta eru skít tapaðar skattekjur.
Er þá bara ekki málið að velta þeirri byrði bara líka á okkur sem erum að böglast við að skapa verðmæti og halda hjólunum höktandi? Höfum ennþá fyrir náð og miskunn vinnu, og ekki flúin land vegna þess að við höldum í veika von um að hér skapist einhverntímann aftur mannsæmandi lífskjör í komandi framtíð. Að minnsta kosti gefið þið ekki mikla von um það.

mbl.is Hundraða milljarða skattsvik
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hhmmmm...

Hvernig skyldu bandarísk yfirvöld taka á þessum snillingum? Þarna tengjast menn ekki svo glatt böndum innbyrðis sökum fámennis eins og hér. Og fangelsin þeirra skarta ekki 5 stjörnu aðbúnaði eins þau gera hér á heimsmælikvarða. Sjáum til.
mbl.is 14 handteknir grunaðir um innherjasvik
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þumbast við innflutning.

Það er ekkert skrítið þótt burðarpokar í Bónus hafi hækkað um helming undanfarið enda um innflutta vöru að ræða. Krónan og aðrar verslanir Kaupáss notar hins vegar burðarpoka sem eru framleiddir hjá Plastprent. Sama er að segja um Samkaup fyrir allar þeirra verslanir. Það er mun hagstæðara að framleiða og fullvinna plastpoka og umbúðir úr plasti hér heima heldur en að flytja þær til landsins. Bónusarnir vita það vel sjálfir. Plastprent framleiðir líka alla burðarpoka fyrir vínbúðir ÁTVR.
mbl.is Hærra verð á plastpokunum í Bónus
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband